Kardashian systurnar sitja svo sannarlega ekki auðum höndum en nú hefur sjónvarpsstöðin E kynnt nýja sjónvarpsþáttarröð til leiks sem ber heitið Revenge Body eða Hefndarlíkami. Þátturinn er hugarfóstur Khloé Kardashian og er hann innblásinn af hennar eigin reynslu en raunveruleikastjarnan er nú í sínu besta formi til þessa. Drifkraftur hennar til að ná þessum mikla árangri var skilnaður hennar við eiginmann sinn Lamar Odom og er ætlun hennar nú að aðstoða aðra við að ná sambærilegri uppreisn æru með betri útliti og bættri heilsu. Þessar forsendur þáttanna hafa nú þegar hlotið mikla gagnrýni vestanhafs enda taldir ýta undir neikvæða sjálfsmynd.
„Ég var í yfirþyngd sem barn og var kölluð feita systirin. Þegar ég var stressuð eða sorgmædd, borðaði ég bara, svo ég varð að læra að snúa þessari orku í jákvæðari og heilbrigðari áttir fyrir sjálfan mig og féll ég þannig fyrir líkamsræktinni,“ segir Khloé.
Segist stjarnan vonast til að hjálpa fólki í sömu sporum í rétta átt með þáttunum en einnig mun hún aðstoða þátttakendur við að hressa uppá útlit sitt með ýmsu móti.
Fyrsti þátturinn fer í loftið þann 12. Janúar næstkomandi og lofar sjónvarpsstöðin miklu drama.