Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price hefur aldrei farið leynt með aðdáun sína á fegrunaraðgerðum, en hún hefur gengist undir fjölmargar slíkar í gegnum tíðina.
Price virðist eina ferðina enn hafa lagst undir hnífinn, en varir hennar hafa stækkað gífurlega og má leiða líkum að því að hún hafi látið sprauta fyllingarefni í þær.
Á miðvikudaginn sótti sjónvarpskonan og fyrirsætan National Television-verðlaunin heim og höfðu margir orð á því að Price væri sérlega dömulega til fara. Í gær skellti hún sér hins vegar á opnun nýs veitingastaðar og höfðu varir hennar þá margfaldast í stærð.
Frétt mbl.is: Hættir ekki að eiga við andlitið
Frétt mbl.is: Myndi ekki útiloka neina aðgerð