Einn þekktasti tengdasonur Íslands, vaxtarræktartröllið Rich Piana, er í vanda staddur. Piana var kvæntur Söru Heimisdóttur og bjó parið saman í Bandaríkjunum. Það var mikið í fréttum á meðan á sambandi þeirra stóð enda gustaði af þeim saman.
Piana er mikill vexti, vöðvastæltur og hrikalegur og heldur út sinni eigin youtube-rás. Fókuspunkturinn á youtube-rás hefur verið almenn hreysti og hefur hann leyft fylgjendum sínum að fylgjast með sér í ræktinni. Nú virðist vera komið babb í bátinn og hann líklega ekki eins heilsuhraustur og hann vill sjálfur meina. Ef marka má fréttir TMZ þurfti að fara með kappann á sjúkrahús á mánudagskvöldið vegna inntöku á of stórum lyfjaskammti.
Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn mættu á staðinn var Piana meðvitundarlaus og var farið með hann strax á sjúkrahús. Samkvæmt TMZ er honum haldið sofandi í öndunarvél. Ekki hafa borist fréttir af því hvernig ástandið á kappanum er akkúrat núna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Piana kemst í fréttir vegna heilsu sinnar því í lok síðasta árs þurfti hann að láta fjarlægja nokkra fæðingarbletti vegna húðkrabbameins.
Nýjasta færsla Piana á Instagram sýnir þó að kappinn er í fullu fjöri. Það er þó ekki alveg víst að hann hafi sett myndina inn sjálfur því greifar eins og Piana eru náttúrlega með starfsfólk. Tekið er fram í myndinni að hún sé gömul, ekki ný.
Hér er Rich Piana með Fjallinu, Hafþóri Júlíusi Björnssyni, sem er þekkt kraftatröll.