Björk hefur gefið út nýtt myndband við lagið „The Gate,“ sem er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hennar sem kemur út í nóvember.
Myndbandinu er leikstýrt af Andrew Thomas Huang, samstarfsmanni Bjarkar til margra ára. Listræn stjórnun er í höndum Bjarkar, James Merry og Alessandro Michele, yfirhönnuður Gucci. Björk klæðist sérsaumuðum kjól frá Gucci í myndabandinu, en alls fóru 870 klukkustundir í að búa til kjólinn.
Ekki hefur verið tilkynnt um heiti nýju plötunnar, en Björk telur líklegast að „Utopia“ verði fyrir valinu. Einnig hefur hún sagt að platan sé „Tinder-platan“ hennar. Síðasta plata Bjarkar, Vulnicura, fjallaði um skilnað Bjarkar við eiginmann sinn, Matthew Barney. Í viðtali við Dazed segir Björk að hún sé enn viðkvæm fyrir ástinni, en að næsta plata muni veita innsýn í stefnumótalíf hennar.
„The Gate“ mun því gefa tóninn um það sem koma skal. Tónlistarmaðurinn Arca er meðframleiðandi plötunnar, en hann vann einnig með Björk við gerð Vulnicura.