Nú þegar tilkynnt hefur verið um trúlofun Harrys Bretarpins og Meghan Markle er ljóst að leikkonan mun flytja inn til hans. Talið er að Nottingham Cottage verði fyrsti bústaður þeirra en þar býr Harry nú.
Nottngham Cottage er lítið hús á lóð Kensington-hallar en það er með tveimur svefnherbergjum. Tveimur móttökuherbergjum, baðherbergi og litlum garði samkvæmt Telegraph.
Nottingham Cottage var áður heimili Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju í tvö og hálft ár. Lofthæðin er lítil í húsinu og er Vilhjálmur sagður hafa átt á hættu að reka sig upp undir.