Hin þýska Sophia Wollersheim eða Sophia Vegas eins og hún kallar sig hefur lagt mikið á sig til þess að minnka mittisummál sitt. Eins og sést á útliti Vegas er hún óhrædd við að leggjast undir hnífinn til þess að breyta útliti sínu.
Auk þess að hafa látið stækka brjóst sín og breyta nefi sínu greinir Mirror frá því að hún hafi látið fjarlægja fjögur rifbein. Er mittismálið hennar aðeins 47 sentimetrar en markmiðið er að vera með minnsta mittisummál í heimi.
Síðasta sumar fór hún til Bandaríkjanna til þess að láta fjarlægja tvö neðstu rifbeinin, sitt hvorum megin. Aðgerðin er ólögleg í Þýskalandi þar sem hún þykir of áhættusöm.
Vegas sem hefur tekið þátt í raunveruleikaþáttum heldur upp á stjörnur á borð við Cher og Brigitte Bardot en þær eru sagðar hafa látið fjarlægja úr sér rifbein. Fyrrverandi eiginmaður hennar kennir sér hins vegar um lýtaaðgerðaáhugann.
A post shared by Sophia Vegas (@officialsophiavegas) on Feb 7, 2018 at 11:55am PST