Sænski plötusnúðurinn Avicii er látinn, 28 ára gamall.
Avicii, sem hét réttu nafni Tim Bergling, fannst látinn í Múskat, höfuðborg Óman.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fulltrúa hans. Ekki kemur fram hvernig hann lést.
Avicii þótti einn fremsti plötusnúður heims og átti sinn þátt í uppgangi danstónlistar í heiminum.
Tvö ár eru liðin síðan Avicii ákvað að hætta að koma fram á tónleikum.
Avicii greindi opinberlega frá heilsufarsvandamálum sínum. Meðal annars tengdust þau briskirtilsbólgu sem orsakaðist að hluta til af óhóflegri áfengisneyslu.
Af þessum sökum þurfti hann af aflýsa tónleikum árið 2014 þegar bæði gallblaðra hans og botnlangi voru fjarlægð.
„Með sorg í hjarta tilkynnum við andlát Tim Bergling, einnig þekkts sem Avicii,“ sagði í yfirýsingu frá umboðsskrifstofu hans.
„Fjölskyldan er eyðilögð og við biðjum alla um að virða þörf hennar fyrir að syrgja í næði á þessum erfiða tíma. Engar frekari yfirlýsingar verða gefnar.“
BREAKING: Avicii dies at 28 https://t.co/1cIZtmwthl pic.twitter.com/cE6lkVEeZy
— Variety (@Variety) April 20, 2018
Avicii vakti mikla athygli með fyrstu plötu sinni, True, sem kom út árið 2013. Þar var að finna lög á borð við Wake Me Up og Hey Brother sem voru mikið spiluð á útvarpsstöðvum hérlendis. Árið 2014 vann hann til Billboard-verðlaunanna með laginu Wake Me Up þegar það var valið besta útvarpslagið og besta Dance/Electro-lag ársins.
Stars and fellow musicians pay tribute to Avicii https://t.co/fuiAcHhxgy
— Entertainment Weekly (@EW) April 20, 2018