Daði Freyr og Gagnamagnið íhuguðu að taka þátt í Söngvakeppninni á næsta ári, en segjast ekki geta gert það þar sem keppnin verði haldin í Ísrael. Þetta segja þau Daði og Árný á Facebook-síðu sinni Árný og Daði í Kambódíu.
„Við getum ekki ímyndað okkur að taka þátt í Eurovisiongleðinni með góðri samvisku á meðan Ísraelsríki og þeirra her beitir Palestínumönnum hrottalegu ofbeldi í næsta nágrenni,“ segir í færslunni.
Við hvetjum RÚV til að taka ekki þátt í keppninni á næsta ári.
Þá hafa rúmlega 6.000 manns ljáð nafn sitt undirskriftalista sem stofnaður var eftir að Ísrael fór með sigur í Eurovision, en á síðunni er hvatt til þess að Ísland taki ekki þátt í keppninni það árið.