Meghan Markle og Harry Bretaprins eru hjón. Þau játuðust hvort öðru við hátíðlega athöfn í kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala í dag. Horfðust þau einlæglega í augu er þau fóru með tryggðarheit sín.
Vilhjálmur Bretaprins, bróðir Harrys, var svaramaður hans og afhenti hann erkibiskupnum sem gaf þau saman hringana. Harry dró því næst hringinn, sem er m.a. úr velsku gulli, á fingur Meghan. Eftir að Meghan hafði svo dregið hring á fingur Harrys lýsti erkibiskupinn því yfir að þau væru hjón. Heyra mátti mannfjöldann fyrir utan kapelluna fagna í beinni útsendingu fjölmiðla innan úr kapellunni.
Meghan gekk í fyrstu ein inn í kirkjugólfið en á miðri leið tók tengdafaðir hennar, Karl, undir arm hennar og fylgdi henni til Harrys sem beið við altarið.
Kjóll Meghan var hannaður af breska fatahönnuðinum Clare Waight Keller. Á höfði bar hún kórónu sem Elísabet Englandsdrottning á og lánaði henni. Kórónan er skrýdd demöntum og var gerð árið 1932.
Erkibiskupinn af Kantaraborg sem gaf þau saman hóf athöfnina á því að spyrja viðstadda hvort að einhver væri mótfallinn því að þau gengu í hjónaband. Það mátti þá heyra saumnál detta í kapellunni.
Harry og Meghan brostu og flissuðu er þau voru spurð hvort þau vildu ganga að eiga hvort annað. Gleði þeirra smitaði alla viðstadda. Á meðan ávörp voru flutt og söngvar sungnir sátu þau hlið við hlið, leiddust og brostu til hvors annars og ástvina sinna. Bandaríski presturinn Michael Curry var meðal þeira sem hélt ræðu af mikilli innlifun. Hann hóf hana á orðum Martin Luther King og lauk henni einnig á tilvitnun í hann. „Bróðir minn og systir. Guð elskar ykkur og megi guð blessa ykkur,“ sagði hann m.a.
Að henni lokinni sögn gospel-kór lagið Stand By Me.
Margir þóttust sjá Harry þurrka tár af hvarmi á meðan athöfninni stóð.