Donald Trump Bandaríkjaforseti og Theresa May forsætisráðherra Bretlands eru í forgrunni á forsíðumynd alþjóðlegrar útgáfu New York Times í dag. Fyrir aftan þau lygnir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra aftur augunum, en myndin er tekin á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins.
Forsíðufrétt alþjóðaútgáfu New York Times í dag fjallar um stirðleika í samskiptum Bandaríkjanna og Bretlands og fyrirhugaða opinbera heimsókn Bandaríkjaforseta til Bretlands.
Myndaritstjórn bandaríska blaðsins hefur ef til vill þótt viðeigandi að hafa þjóðarleiðtoga í bakgrunni sem virðist þreyttur á átökum þeirra Trump og May, en því verður ekki neitað að á myndinni virðist Katrín Jakobsdóttir jafnvel vera að dæsa yfir þeim orðaskiptum sem eru að eiga sér stað nokkrum metrum fyrir framan hana.
En líklegra er þó að forsætisráðherra sé einungis að njóta sólarinnar á meginlandi Evrópu, eftir sólarleysið framan af sumri í Reykjavík.