„Mannleg mistök“ leiddu til þess að röng niðurstaða fékkst í útkomu atkvæða dómnefndarhluta Hvíta-Rússlands í úrslitum Eurovision-söngvakeppninnar. Eftir að rétt niðurstaða fékkst fara Svíar upp fyrir Norðmenn í fimmta sætið.
Eins og fram kom á laugardag var öllum fulltrúum Hvíta-Rússlands í dómnefndinni vísað úr nefndinni eftir að þeir greindu frá því hvernig atkvæðum þeirra hafði verið varið í undankeppninni í vikunni.
Stig dómnefndar Hvíta-Rússlands voru á úrslitakvöldinu reiknuð út frá líkindum annarra landa. Fram kemur í yfirlýsingu EBU [Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva] að mistök hafi orðið við reikninginn.
Þau hafi engin áhrif á niðurröðun fjögurra efstu laganna. Svíar hoppi hins vegar upp fyrir Norðmenn og N-Makedónía fari upp fyrir Aserbaídsjan í sjöunda sætið.
Íslenska atriðið verður af tveimur stigum við leiðréttan útreikning en heldur sínu tíunda sæti.
Hér að neðan má sjá niðurstöðu tíu efstu laganna eftir leiðréttan útreikning, hvort þau hafi fengið fleiri eða færri stig og hvort sætaniðurröðun þeirra hafi breyst. Upplýsingar eru fengnar af Wiwibloggs:
1. Holland (498 stig) +6 stig
2. Ítalía (472 stig) +7 stig
3. Rússland (370 stig) -1 stig
4. Sviss (364 stig) +4 stig
5. Svíþjóð (334 stig) +2 stig, upp um eitt sæti
6. Noregur (331 stig) -7 stig, niður um eitt sæti
7. N-Makedónía (305 stig) +10 stig, upp um eitt sæti
8. Aserbaídsjan (302 stig) + 5 stig, niður um eitt sæti
9. Ástralía (284 stig) -1 stig
10. ÍSLAND (232 stig -2 stig