Andrew Bretaprins segist í viðtali sem sýnt verður í bresku sjónvarpi á morgun hafa brugðist konungsfjölskyldunni með því að dvelja á heimili auðkýfingsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
Prinsinn ræddi við BBC um tengsl sín við Epstein í viðtali við fréttaskýringaþáttinn Newsnight.
Tengsl prinsins við Epstein rötuðu fram í sviðsljósið eftir að Epstein var handtekinn í sumar vegna áskana um kynferðisofbeldi. Hann lést í ágúst í fangelsi í New York og er talinn hafa svipt sig lífi.
Prince Andrew tells BBC he "let the side down" by staying at home of convicted US sex offender Jeffrey Epstein https://t.co/604wxclZAf
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) November 15, 2019
Andrew Bretaprins var myndaður árið 2010 á göngu með Epstein í Central Park í New York, tveimur árum eftir að Epstein fékk fyrst dóm fyrir að kaupa kynlíf af stúlku undir lögaldri. Blaðið Mail on Sunday hefur birt ljósmyndir sem sýna prinsinn í íbúð Epsteins á Manhattan á svipuðum tíma.
„Ég skamma sjálfa mig vegna þessa daglega, af því að þetta var ekki við hæfi af meðlimi konungsfjölskyldunnar og við reynum að viðhalda hæstu viðmiðum og hegðun og ég brást þeim, það er svo einfalt,“ sagði Andrew.
Virginia Giuffre, sem áður hét Virginia Roberts, bar vitni um það í ákæru gegn Epstein og vinkonu hans árið 2016 að hún hafi haft kynmök við Andrew þegar hún var á barnsaldri en vitnisburðinum hefur verið ákaft neitað af prinsinum og konungsfjölskyldunni.
Andrew segist í viðtalinu ekki muna eftir Guiffre. „Ég man alls ekki eftir að hafa hitt þessa konu,“ segir Andrew í viðtalinu.