Er ekki kærasta Brad Pitts

Brad Pitt og Alia Shawkat eru bara vinir.
Brad Pitt og Alia Shawkat eru bara vinir. Samsett mynd

Eftirsóttasti piparsveinn heims, leikarinn Brad Pitt, má ekki standa við hlið konu án þess að hún sé sögð kærasta hans. Leikarinn sást í galleríi í Los Angeles á dögunum með Arrested Development-leikkonunni Aliu Shawkat. 

Meral Melika Duran spjallaði við Pitt í galleríinu og birti í myndir á Instagram-síðu sinni. Á myndunu sést Shawkat í för með Pitt ásamt öðru fólki. 

Heimildarmaður E! segir þau Pitt og Shawkat bara vera vini. 

„Þau hafa varið tíma saman og hafa svipuð áhugamál en það er ekkert meira,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þau eru ekki par og það er ekkert rómantískt í gangi. Brad á marga vini úr mismunandi áttum og þetta er einn þeirra. Hann hefur áhuga á að vera í félagsskap vina.“

Pitt sem er 55 ára hefur ekki verið í alvarlegu sambandi síðan hann og leikkonan Angelina Jolie tilkynntu um skilnað fyrir rúmlega þremur árum. Shawkat hins vegar er þrítug og greindi frá því árið 2017 að hún væri tvíkynhneigð.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg