Pitt varð edrú með hjálp Bradley Cooper

Leikarinn Brad Pitt er hættur að drekka.
Leikarinn Brad Pitt er hættur að drekka. AFP

Í ræðu á galakvöldi í New York í vikunni viðurkenndi leikarinn Brad Pitt að kollegi hans Bradley Cooper hefði hjálpað honum að hætta að drekka. Ástæða þess að hann hóf að tala um Cooper og edrúlífið var sú að Cooper afhenti Pitt verðlaun. 

„Takk Bradley. Bradley var að klára að svæfa dóttur sína og flýtti sér svo hingað til þess að gera þetta,“ sagði Pitt þegar hann tók við verðlaununum. „Ég varð edrú út af þessum manni og síðan hafa allir dagar verið betri.“

Pitt hætti að drekka í kjölfar þess að hann og Angelina Jolie tilkynntu um skilnað sinn fyrir þremur árum. Átti hann við fíknivanda að stríða sem hafði slæm áhrif á fjölskyldulífið. Cooper hins vegar hætti að drekka 29 ára og hefur greint frá því að áfengi hefði eyðilagt líf sitt ef hann hefði ekki hætt. 

Bradley Cooper.
Bradley Cooper. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg