Think About Things með Daða og Gagnamagninu, sem hefði verið framlag Íslendinga í Eurovision þetta árið ef ekki hefði verið fyrir heimsfaraldur, hefur notið gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að ekki hafi orðið af keppninni.
Síðustu tíðindi af þeim vinsældum eru að það trónir á toppi spilunarlistans Shazam Discovery Top 50. Shazam er forrit sem leyfir fólki að taka upp lög á símann sinn og síminn greinir þá um hvaða lag ræðir.
Thinking About Things hefur verið flett upp sérstaklega oft, sem kemur því á þennan lista. Það þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess að lagið fer eins og eldur um sinu um internetið þessi dægrin í myndböndum þar sem fólk sviðsetur eins konar dans með lagið undir. Fólk heyrir tónlistina og vill vita hvaða lag þetta er.
Síðast komst útfærsla þessarar fjölskyldu á flug:
Salam Aidilfitri from my family to yours! 🖤🖤🖤 pic.twitter.com/0cp9pO2dIf
— ʕ•ᴥ•ʔ (@adamimanullah) May 24, 2020
Á sama tíma og kórónuveirufaraldurinn spillti þannig fyrir þátttöku Íslendinga í keppninni sjálfri, kunna samkomutakmarkanir að hafa átt sinn þátt í að þessi tegund myndbanda hafi orðið til, sbr.:
Day 17: morale is weird pic.twitter.com/TW4Xdv0qJH
— Garrett Williams (@badboygargar) March 30, 2020
Ítalir og Bretar hafa verið að „shazam-a“ laginu mest, þ.e. fletta því upp. Shazam Top Discovery 50-listinn er á Apple Music veitunni og virðist stökkpallur fyrir frekari afrek í flóknum algrímsskilyrtum veruleika spilunarlistanna. Þannig hóf hið ógnarvinsæla lag „Dance Monkey“ sinn glæsta feril á listanum, og hélt velli í sex vikur í röð, þar af eina á toppnum.
Listinn mælir ýmsa þætti, eins og mjög öran vöxt vinsælda á stuttum tíma, en mælir ekki með beinum hætti fjölda uppflettinga. Það gerir Global 200 Shazam. Þar stökk Daði upp í 123. sæti í vikunni.