Bandaríska leikkonan Kelly Preston, sem lék meðal annars í kvikmyndunum Jerry Maguire og Twins lést í gær. Banamein hennar var brjóstakrabbamein. Eiginmaður hennar, leikarinn John Travolta, greindi frá þessu á Instagram í gær. Hún var 57 ára gömul.
Hann sagði erfitt að færa þessar fregnir en því miður hafi eiginkona hans lotið í lægra haldi fyrir brjóstakrabbameini eftir tveggja ára baráttu. Hún hafi barist kröftuglega með stuðningi marga.
View this post on InstagramA post shared by PeepingMoon (@peeping.moon) on Jul 13, 2020 at 12:13am PDT
Tímaritið People hefur eftir ættingjum að Preston hafi látist í gærmorgun. Hún hafi farið leynt með veikindin en verið í læknismeðferð í töluverðan tíma við krabbameininu. Þar hafi hún notið stuðnings nánustu fjölskyldu og vina.
Kelly Preston fæddist 13. október árið 1962 á Hawaii. Hún lærði leiklist við háskóla Suður-Kaliforníu. Hún varð heimsfræg fyrir hlutverk sitt í Twins árið 1988 en tvíburana í myndinni léku þeir Arnold Schwarzenegger og Danny DeVito. Preston lék í tugum kvikmynda og sjóvarpsþátta en hún lék meðal annars í rómantísku gamanmyndinni Jerry Maguire ásamt Tom Cruise og Renee Zellweger.
Travolta og Preston gengu í hjónaband 1991 og eignuðust þrjú börn. Elsti sonur þeirra lést árið 2009 aðeins 16 ára að aldri.