Leikkonan Jennifer Lawrence steig aftur í sviðsljósið á dögunum eftir að hafa tekið sér þriggja ára hlé frá sviðsljósinu. Leikkonan, sem er kasólétt, mætti í spjallþátt Stephens Colberts sem spurði hana hvað hún hefði eiginlega verið að gera síðustu árin.
„Ég stundaði bara mikið kynlíf,“ sagði Lawrence hlæjandi og leit niður á óléttukúluna sína. „Ég er að grínast. Ég eldaði svolítið. Svo kom heimsfaraldurinn og svo eldaði ég og tók mikið til.“
Colbert spurði leikkonuna hvað hún gerði ef hún væri ekki leikkona og sagðist Lawrence líklega myndu vinna við heimilisþrif. Henni finnst gaman að þrífa bæði eldhús og baðherbergi. Hún hlustar á hlaðvarp um morð þegar hún þrífur og skipuleggur sig vel.