Ef marka mál stuðla veðmálasíðunnar Betsson munu Reykjavíkurdætur fara fyrir hönd Íslands í Eurovisionsöngvakeppnina sem fram fer á Ítalíu í maí. Veðmálasíðan gefur sveitinni stuðulinn 1,5.
Úrslitin ráðast í Söngvakeppninni annað kvöld en Katla Þórudóttir Njálsdóttir virðist ætla að veita Reykjavíkurdætrum harða samkeppni en stuðullinn á henni er 3.9. Stuðullinn á Kötlu hefur hækkað lítillega í vikunni, en í upphafi vikunnar var hún með 3.5.
Lagið sem þykir ólíklegast til að vinna keppnina er lagið Don't you know í flutningi systkinanna Más Gunnarssonar og Ísoldar Wilberg, en stuðullinn á þeim er 12. Þýðir það að ef veðjað er þúsund krónum á sigur þeirra, og þau vinna, vinnur sá hinn sami 12 þúsund krónur.