Smári Gunnarsson, íslenskur leikari og leikstjóri búsettur í London, fer með aðalhlutverk í nýrri auglýsingu Mercedes Benz.
Auglýsingin, eða stuttmyndin öllu heldur, var gerð í tilefni af alheimsfrumsýningu nýja GLC-bíls fyrirtækisins og sýnd í beinu streymi á YouTube-rás Mercedes.
Smári er þar í hlutverki sérvitra leikstjórans Magnus sem verður vægast sagt ósáttur þegar George Russel, ökumaður og liðsmaður Mercedes í Formúlu 1, lætur ekki sjá sig í myndatöku.
Aldrei er að vita nema George Russel mæti þó á skjáinn með Smára þegar líður á myndskeiðið.
Sjón er sögu ríkari: