Þýski leikarinn Alexander Dreymon viðurkennir í samtali við breska blaðið Independent að hann eigi eftir að sakna vígamannsins Útráðs frá Bebbanborg sem hann lék í tæp tíu ár í sögulega myndaflokknum Síðasta konungsríkið.
Fimm seríum var fylgt eftir með kvikmyndinni The Last Kingdom: Seven Kings Must Die sem komin er á Netflix. Spurður hvað nú taki við svarar Dreymon því til að það verði eitthvað nær okkur í tíma „þar sem ekki þarf þrjá menn til að opna búninginn minn þegar ég þarf að pissa“.