Britney slegin utan undir af öryggisverði

Britney Spears sá körfuboltamanninn Victor Wembanyama í Las Vegas.
Britney Spears sá körfuboltamanninn Victor Wembanyama í Las Vegas. AFP

Britney Spears hefur birt yfirlýsingu á Instagram eftir að öryggisvörður körfuboltamannsins Victor Wembanyama sló hana utan undir, að því er fjölmiðlar vestan hafs greindu frá í gær. 

Hugðist hún óska Wembanyama til hamingju um gott gengi að undanförnu þegar öryggisvörður körfuboltamannsins, sem leikur fyrir San Antonio Spurs í NBA-deildinni, sló hana utan undir.

Segist hafa pikkað í öxl Wembanyama

Wembanyama hefur lýst því yfir að Britney hafi gripið í hann og því hafi öryggisverðir þurft að bregðast við, að því er Daily Mail greinir frá.

Í yfirlýsingu á Instagram útskýrir Britney að hún hafi séð til kappans á hóteli í Vegas, því næst farið út að borða og séð hann aftur. Þá hafi hún pikkað í öxl kappans og fengið hörð viðbrögð frá öryggisgæslu Wembanyama.

„Áföll eru eitthvað sem ég kannast vel við og ég hef fengið að upplifa hóg af þeim. Ég var ekki að búast við atburðarásinni sem átti sér stað í gærkvöld,“ skrifaði hún í færslu á Instagram í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það eru ótrúlega mörg smáatriði, sem þú þarft að afgreiða til þess að koma áhugamáli þínu í höfn. Reyndu að halda í vonina og bjartsýnina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það eru ótrúlega mörg smáatriði, sem þú þarft að afgreiða til þess að koma áhugamáli þínu í höfn. Reyndu að halda í vonina og bjartsýnina.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg