Fyrrverandi aðstoðarmaður stórleikarans Will Smith, Brother Bilaal, greindi frá því í viðtali á dögunum að hann hafi gengið inn á leikarann og góðvin hans, Duane Martin, í miðjum klíðum. Sjálfur segir Smith ekki eitt sannleikskorn í fullyrðingum Bilaal, en þrátt fyrir það hefur orðrómurinn farið sem eldur í sinu um netheima.
Talsmaður Smith segir söguna „algjöran uppspuna“ og segir hann leikarann „íhuga að grípa til aðgerða.“
Smith og Martin kynntust árið 1993 þegar sá síðarnefndi lék aukahlutverk í þætti af Fresh Prince of Bel Air, en það eru þættirnir sem komu Smith á kortið.
Síðustu ár hafa reynst Óskarsverðlaunaleikaranum erfið, en eiginkona Smith, leikkonan Jada Pinkett Smith opinberaði nýverið að þau hjónin væru skilin að borði og sæng og að það væri ekki nýtt af nálinni.
Will og Jada hafa lifað aðskildum lífum síðastliðin sjö ár, en hjónin mættu þó hönd í hönd á Óskarsverðlaunahátíðina á síðasta ári en fengu á sig mikla gagnrýni í kjölfar löðrungsins sem átti sér stað og fjallar Jada um atvikið í bókinni Worthy.
Leikarinn rauk upp á svið og sló grínistann Chris Rock eftir að hann sagði brandara sem Will þótti særandi. Will var í kjölfarið bannað að mæta á hátíðina næstu tíu árin.