Gleðin var allsráðandi þegar seinni undanúrslit Söngvakeppni sjónvarpsins voru haldin í kvöld.
Þau Hera Björk, Bashar Murad og Sigga Ózk komust áfram og munu stíga á svið á úrslitakvöldinu eftir viku ásamt hljómsveitinni Væb og Anítu Rós Þorsteinsdóttur.
Litagleði, glimmer og gleði voru einkennandi fyrir kvöldið. Sjón er sögu ríkari en hér fyrir neðan má líta myndir sem ljósmyndari mbl.is tók.