Guillermo Rodriguez, sjónvarpsstjarna og dyggur aðstoðarmaður Jimmy Kimmel, var sannkallaður senuþjófur í spjallþætti Kimmel, Jimmy Kimmel Live, á dögunum.
Spjallþáttastjórnandinn vinsæli, var að ræða við Kim Kardashian, raunveruleikastjörnu og athafnakonu, þegar Rodriguez mætti á svið klæddur SKIMS aðhaldsfatnaði. SKIMS er í eigu Kardashian, hún stofnaði nærfatamerkið ásamt Emmu og Jens Grede árið 2019.
Rodriguez, sem hefur unnið fyrir Jimmy Kimmel síðastliðin 20 ár, tók sig vel út í svörtum samfesting, Kardashian, Kimmel og áhorfendum til mikillar ánægju.