Leikkonan Susan Buckner, sem fór með hlutverk klappstýrunnar Patty Simcox í dans- og söngvamyndinni Grease, er látin 71 árs að aldri.
Í tilkynningu frá fjölskyldu hennar segir að hún hafi látist friðsamlega á heimili sínu þann 2. maí síðastliðinn, umkringd fjölskyldu sinni og ástvinum. Ekki hefur verið greint frá dánarorsök leikkonunnar.
Buckner var fjölhæf listakona. Hún starfaði meðal annars sem leikkona, dansari og söngkona á ferli sínum. Buckner kom fram í sjónvarpsþáttum á borð við The Mac Davis Show, Sonny and Cher og The Brady Bunch Variety Hour. Buckner var krýnd fegurðardrottning Washington-fylkis árið 1971, þá 18 ára gömul.