Áhöfn breskrar sprengjuþotu af Nimrod-gerð frá flugstöð í Skotlandi varð nýlega fyrir óhappi, hlíf á um 20 sm breiðu gati, sem hljóðduflum er varpað út um, lokaðist ekki. Varð að grípa til örþrifaráða og troða tekatli í gatið meðan þotunni var flogið heim.
Viðhald Nimrod-vélanna er sagt lélegt og dæmi um að mælitæki séu fest með límbandi til bráðabirgða.