Maður nokkur í Richmond í Virginíu hefndi sín á fyrrverandi kærustu sinni með því að setja mynddiska með heimagerðum kynlífsmyndum af henni undir rúðuþurrkur á bílum víðsvegar um borgina.
Á disknum gaf hann einnig upplýsingar um nafn kærustunnar fyrrverandi, heimilisfang hennar og símanúmer.
Að sögn lögreglu hafði konan ekki hugmynd um að myndirnar hefðu verið teknar og hafi hún fengið allmargar heimsóknir og símhringingar frá ókunnugum mönnum sem föluðust eftir kynlífsþjónustu hjá henni.
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir að framleiða og dreifa dónaskap. Lögreglumaður sagðist telja að maðurinn hafi verið að leita hefnda á kærustunni fyrrverandi fyrir að hún vildi ekkert með hann hafa lengur. „Myndbandið var tekið án þess að hún vissi af því fyrir að minnsta kosti ári síðan.“
Konan er nú með öðrum manni og vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið.