Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Írlandi, sem hefur með höndum umferðaröryggi, var tekinn grunaður um ölvun við akstur í gærkvöldi. Nú stendur yfir átak á Írlandi gegn ölvunarakstri.
Var lögregluþjónninn handtekinn eftir ábendingu frá vegfarenda sem þótti ökulag mannsins furðulegt.
Er lögregluþjónninn einn af fimm lögregluþjónum sem voru valdir fyrr í mánuðinum til þess að hafa umsjón með umferðaröryggi á þjóðvegum Írlands, þar á meðal ölvunarakstri.
Var lögregluþjónninn að aka ómerktri lögreglubifreið þegar hann var stöðvaður.