Óður héri réðst á eldri hjón í Austurríki

Lögreglumenn neyddust til þess að drepa óðan héra sem réðst á eldri hjón í norðurhluta Austurríkis. Að sögn lögreglu réðst fimm kílóa dýrið á 74 ára gamla konu er hún var að hengja upp þvott í garðinum sínum í Linz. Þegar eiginmaður hennar ætlaði að koma frúnni til bjargar réðst hérinn á hann.

Dýrið lét ekki þar við staðar numið heldur réðst einnig á tvo lögreglumenn sem voru sendir á staðinn til þess að hjálpa hjónunum. Að sögn lögreglu áttu þeir einskis annars úrkosti en að beita skammbyssum sínum á dýrið.

„Við vitum að naut, svín eða hundar geta orðið sérstaklega árásargjörn, en þetta er í fyrsta sinn sem þetta gerist með héra,“ sagði talsmaður lögreglu.

Gamla konan var flutt á sjúkrahús með hérabit á fótunum, en dýralæknir rannsakar nú hvort hérinn hafi verið haldinn hundaæði eður ei.

Robert Ferdiny, dýralæknir í Linz, segir að hundaæðiveiran hafi ekki greinst í Linz og nágrannahéruðum þess í yfir 15 ár.

Ferdiny segir að svo gæti verið að rekja megi undarlega hegðun hérans til þess að hann hafi verið á „kynþroskaskeiðinu sem hafi ágerst í miklum hlýindum,“ en afar hlýtt hefur verið í veðri í Austurríki að undanförnu miðað við árstímann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen