Kínverjinn Zhang Dafang er mikill áhugamaður um símtæki og á orðið mikið safn af slíkum tækjum, bæði stórum og smáum. Tækin koma víðsvegar að úr heiminum og mörg þeirra eru all sérstök í útliti.
Ástríða hans á símtækjum hefur hinsvegar sínar neikvæðu hliðar en Zhang hefur verið sagt upp í vinnunni, ævisparnaður hans er fyrir bí og auk þess er lítið sem ekkert pláss fyrir fleiri símtæki á heimili hans.
Hann hefur nú óskað eftir því að eitthvert safn komi honum til hjálpar og bjóðist til þess að hýsa einstakt símatækjasafn hans.