Annað árið í röð er Miami á Flórída efst á lista yfir þær borgir í Bandaríkjunum þar sem ökumenn eru ruddalegastir og mest um svokallaða „vegabræði.“ Er þetta niðurstaða árlegrar könnunar sem birt var í gær.
Það eru samtök bifreiðaeigenda í Connecticut, AutoVantage, sem gera könnunina, en næst á eftir Miami á listanum yfir mestu ruddana eru ökumenn í New York, Boston, Los Angeles og Washington.
Kurteisastir eru aftur á móti ökumenn í Portland í Oregon og St.Louis.