Biður konur um að sparka í nárann á sér

Lögreglan í Ontario í Kanada leita nú manns sem er sagður hafa gengið upp að konum þar í borg og beðið þær um að sparka í nárann á sér. Þrjár konur tilkynntu um svipuð atvik til lögreglu og þá sögðu tvær þeirra að umræddur maður ferðaðist um á hjóli.

Umrædd tilvik eru sögð hafa átt sér stað undanfarna tvo mánuði.

Lögregluvarðstjórinn Cate Welsh sagði í dag að það sem maðurinn bæði konurnar um að gera væri ekki glæpur. Hún sagði hinsvegar að óttast sé að óskin sé undanfari kynferðisárásar.

Maðurinn er sagður vera hvítur, um tvítugt, með brúnan hökutopp og með stórt frekjuskarð.

Engin kvennanna segist hafa orðið fyrir meiðslum af hans völdum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar