Lögregla á Ítalíu handtók um helgina mann, sem reyndi að ræna bensínstöð vopnaður boga og örvum.
Maðurinn var handtekinn í borginni Varese eftir að hann hélt spenntum boganum að hálsi afgreiðslumanns á bensínstöð. Afgreiðslumanninum tókst hins vegar að þrýsta á leynilegan hnapp, sem ræsti viðvörunarkerfi og réðist síðan á ræningjann og yfirbugaði hann.