Rússneskur ræningi stal köku af konu þegar hún gekk framhjá og bað konuna síðan að hringja í lögregluna svo hann kæmist aftur í fangelsi.
Rússneskir fjölmiðlar hafa í dag eftir talsmanni lögreglunnar í Krasnojarsk, 4400 km austur af Moskvu, að óljóst sé hvað manninum hafi gengið til en þegar lögreglan kom á staðinn sagðist hann bara vilja komast aftur í fangelsið.
Lögregla komst að raun um, að maðurinn hafði nýlega afplánað 12 ára fangelsisdóm. Hann hefur nú verið ákærður og getur vonast til þess að fá 3 ára fangelsi.