Viskíflaska á 3,3 milljónir króna

Flaska af  81 árs gömlu skosku viskíi var seld á 54 þúsund dali, rúmar 3,3 milljónir króna á áfengisuppboði hjá Christie's í gær í New York. Er uppboðið hið fyrsta frá því fyrir árið 1920 er bann var lagt við sölu áfengis í Bandaríkjunum.

Ekki er vitað hver það er sem keypti flöskuna en alls seldist áfengi fyrir 304,8 þúsund dali. Meðal þess sem seldist á uppboðinu voru  729 flöskur af viskíi sem seldar voru saman á 102 þúsund dali.

Viskíið dýra var eimað hjá  Macallan í Skotlandi árið 1926, sett á flösku árið 1986 og umhellt í aðra flösku árið 2002.

Bann var lagt við uppboðum á áfengi þegar bann var lagt við sölu á áfengi í Bandaríkjunum á árunum 1920-1933 en New York ríki heimilaði uppboðin ekki á ný fyrr en á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir