Lögregla í Utrecht í Hollandi ákvað í gærkvöldi að sleppa karlmanni sem hún stöðvaði við að fá sekt senda heim þegar í ljós koma að vændiskona var í för með honum. Var það gert að þrábeiðni mannsins svo eiginkonan kæmist ekki að athæfinu.
Segir í tilkynningu frá lögreglunni í Utrecht að þegar lögregla stöðvaði bifreið mannsins, vegna þess að ljós á bifreiðinni var brotið, tók hún eftir því að vændiskona var í för með manninum.
Maðurinn staðfesti við lögreglu að konan væri vændiskona sem starfar á götum úti en slíkt er ólöglegt í Hollandi á meðan starfsemi vændishúsa sem eru með tilskilin rekstrarleyfi er lögleg.
Lögreglan skrifaði sekt vegna brotna ljóssins og sagði manninum að sektin yrði send heim til hans í umslagi merktu lögreglunni. Maðurinn baðst griða og vildi greiða sektina á staðnum þar sem eiginkonan myndi uppgötva að hann hafi verið sektaður á götu í Utrecht sem er þekkt fyrir vændi og algengt er að menn taki vændiskonur upp í bíla sína. Eftir að maðurinn grátbað lögreglu um miskunn fór lögregluþjónninn með hann á næstu stöð þar sem hann gat gert upp skuld sína við samfélagið í reiðufé.
„Í anda jólanna ... var manninum leyft að yfirgefa lögreglustöðina 50 evrum fátækari en með létta lund," segir í tilkynningu lögreglu.
Talskona lögreglunnar í Utrecht , Ellen de Heer, segir að fréttatilkynningin hafi verið send út til þess að sýna fram á að lögreglan geti verið liðleg þrátt fyrir að öðru sé oft haldið fram.