Bandaríska parið Jennifer Cannon og Doy Nichols ætlar að ganga í það heilaga í dag. Brúðurin ætlar að klæðast hvítu líkt og margar brúðir velja, en brúðarklæðin eru salernispappír enda fer athöfnin fram á almenningssalerni.
Brúðarkjóllinn er hannaður af Hanah Kim, sem sigraði í keppni um fallegustu brúðarkjólana úr salernispappír. Keppnin var kostuð af vefnum Cheap-Chic-Weddings.com.
Að sögn talsmanns keppninnar fer athöfnin fram á almenningssalerni á Times Square í New York og verða vinir og ættingjar viðstaddir athöfnina sem verður borgaraleg.