Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur gerði grín að REI málinu á jólahlaðborði fyrirtækisins nú um helgina.
Gert var myndband þar sem lagið „Nei, nei, ekki um jólin” með HLH flokkinum, er sungið með nýjum texta, sem útleggst „Rei, rei ekki um jólin.”
Textinn fjallar um starfsmann Orkuveitunnar sem hefur fengið nóg af umræðunni um málefni Orkuveitunnar og REI.
Starfsmennirnir fengu fjölmiðlafólk og ýmsa tengda málinu í lið með sér til að taka þátt í gríninu.
Hér má sjá myndbandið.