Kona í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum hefur verið sökuð um að hafa ráðist á lögreglumann þegar hún snýtti sér í skyrtuna hans.
Lögreglumaðurinn segist hafa handtekið 36 ára gamla konu í síðustu viku þegar hann sá til hennar slá til annars manns, bíta hann í olnbogann og hrækja framan í hann.
Lögreglumaðurinn segir að konan hafi snýtt sér í skyrtuna hans þegar hann var að flytja hana á lögreglustöðina, þar sem hann ætlaði að kæra hana fyrir heimilisofbeldi.