Tveir menn eiga yfir höfði sér refsingu eftir að þeir urðu uppvísir að því að aka látnum vini sínum í skrifstofustól eftir götum Manhattan í New York áleiðis í banka þar sem þeir ætluðu að leysa út tryggingabótaávísun látna mannsins.
Lögreglumanni, sem sá til mannanna, þótti þeir grunsamlegir og handtók félagana, sem heita David Dalaia og James O'Hare. Þeir eru báðir 65 ára að aldri.
Látni maðurinn hét Virgilio Cintron og var 66 ára en hann er talinn hafa látist um sólarhring áður hann fór í þessa hinstu ökuferð sína. Ekki var ljóst hver dánarorsökin var.
Þeir Dalaia og O'Hare eru sagðir hafa lýst mikilli undrun þegar þeim var sagt að vinur þeirra væri látinn. Þeir höfðu reynt að innleysa ávísunina, sem hljóðaði upp á 355 dali, jafnvirði rúmlega 22 þúsund króna, daginn áður en var sagt að Cintron yrði að vera viðstaddur.
Þeir fóru því í íbúðina þar sem annar þeirra bjó ásamt Cintron, klæddu líkið í föt og settu það síðan í stól og héldu af stað í bankann á ný.
Vegfarendur sáu þegar mennirnir skildu líkið eftir utan við bankann og fóru inn til að innleysa ávísunina. Gjaldkerinn sagði á ný að Cintron yrði að vera viðstaddur og þeir fóru þá út að sækja hann. Þar beið lögreglumaðurinn hins vegar eftir þeim.
Lögreglumaðurinn sagðist fyrst hafa haldið að það væri gína, sem sæti í stólnum og um væri að ræða einhverskonar hrekk. En vegfarandi sagði við AP fréttastofuna, að hann hefði strax séð að ekki var allt með felldu.
„Ég sá þennan náunga sitja í stólnum sínum og halla höfðinu aftur. Hann leit út fyrir að vera dauður eða afar veikur," sagði hann við AP fréttastofuna.