Sá siður að sníða sinn eigin öskudagsbúning hefur sem betur fer ekki lagst af þótt hrekkjavökubúningar af ýmsum gerðum úr leikfangaverslunum verði meira áberandi með hverju árinu. Þessi ungi maður fylgist greinilega vel með þjóðmálaumræðunni því hann gekk um Selfoss í dag með heilt hnífasett í bakinu.