Breti var úrskurðaður í fimm daga varðhald fyrir að kasta af sér vatni á eitt mest metna minnismerki Lettlands. Var hann fundinn sekur um að hafa beint bununni að 42 metra hárri Frelsissúlunni, sem reist var í höfuðborginni Ríga árið 1935.
Atferli mannsins hefur vakið viðbrögð á æðstu stöðum. „Þessir Englendingar eru svín. Ógeðslegur hópur af svínum,“ er haft eftir Maris Seglins innanríkisráðherra.