Þrír ungir menn voru handteknir í Kaupmannahöfn í morgun grunaðir um að hafa stolið peningaskáp í fyrirtæki á Amager. Mennirnir hringdu á leigubíl og létu hann aka sér og peningaskápnum heim til eins þeirra en leigubílsstjóranum þóttu þessir flutningar grunsamlegir og hringdi á lögreglu.
Lögreglan brást við og handtók mennina þrjá þar sem þeir voru að bauka með skápinn. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður. Gerð verður krafa um gæsluvarðhald yfir þeim.