Áhugamenn um vindla halda nú vikulanga hátíð í Havana á Kúbu til heiðurs kúbverskrar vindlagerðar. Einn þriðji af 400 milljón handgerðra vindla sem seldir eru um allan heim eru framleiddir á Kúbu. Kúbverskir vindlar eru bannaðir í Bandaríkjunum vegna viðskiptabanns gegn Kúbu sem staðið hefur yfir í fjóra áratugi.