Karlar þurfa framvegis að varast að grípa í kynfæri sín á almannafæri á Ítalíu. Hefur hæstiréttur landsins dæmt mann til greiðslu fyrir að brjóta gegn almennu siðgæði með því að snerta á sér klofið á götum borgarinnar Como.
Féllst dómstóllinn ekki á þá málsvörn að maðurinn hefði verið klæddur í óþægilegan vinnugalla.
Ítrekuðu dómarar að ef menn þyrftu að hagræða einhverju, þá væri æskilegt að bíða þar til þeir væru í einrúmi.