Penn fjölskyldan í New York stækkaði heldur betur á dögunum þegar þríburar fæddust í fjölskyldunni. Það sem er sérstakt við þríburana er að þau eineggja en slíkt gerist einungis í einni af 200 milljón fæðingum. Samkvæmt Reuters fréttastofunni heilsast börnunum öllum vel og þurftu þau að dvelja skamman tíma á spítala eftir fæðinguna.