Finnskur maður skilaði bókasafni með leynd bók, sem var búin að vera í láni í rúmlega 100 ár, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.
Bókasafnið, í bænum Vantaa í Finnlandi, hafði fyrir löngu afskrifað bókina en tók henni fegins hendi. Um er að ræða bundið eintak af mánaðarlegu trúarritinu Vartija frá árinu 1902.
„Við erum ekki viss um hvenær hún var fengin að láni eða hver skilaði henni“, sagði bókasafnsvörðurinn. Áfastur límmiði með merki bókasafnsins sýnir að bókin var lánuð í byrjun síðustu aldar.
Finnland er með yfirgripsmikið bókasafnskerfi og þar eru yfir 900 bókasöfn. Að meðaltali heimsækir hver Finni bókasafn 11 sinnum á ári og tekur að láni 20 bækur.