Borgaryfirvöld í Amsterdam hafa heimilað fólki að stunda kynlíf að kvöldi og nóttu til í almenningsgarðinum Vondelpark frá og með næsta hausti.
Hundaeigendur hafa lýst yfir mikilli andstöðu við málið, þar sem þeim verður framvegis gert að hafa hunda sína í ól. Ósáttur hundaeigandi segir hunda ávallt hafa fengið að hlaupa lausir um í garðinum.
„Það er fáránlegt að slíkt skuli nú vera bannað, en kynlíf á almannafæri ekki.“