Japanskur djasspíanóleikari tjáði brennandi ástríðu sína fyrir tónlist með því að kveikja í píanói sínu, á meðan hann spilaði. Hinn 66 ára gamli Yosuke Yamashita lék djass af fingrum fram fyrir 500 áhorfendur á strönd í Ishikawa, sem er á vesturhluta Japans, þar til píanóið varð alelda og gaf sig.