Fyrsta hótelið sem einungis er ætlað fyrir kvenkynsgesti hefur verið opnað í Sádí-Arabíu.
Vonast eigendur hótelsins að þar geti konur slappað af án þess að þurfa að hafa karlkyns ættingja með í för, hvort heldur sem þær gista eða nýta sér baðaðstöðuna. Var það Prins Sultan bin Salman sem opnaði hótelið í gær.